Ein í úttlandinu
2007-11-30 20:17
Var að skoða gamlar færslur. Ógeðslega sakna ég stundum görlíkrúsins :(
[ varanleg slóð ]
[ ]
|
Pappírsflóð
2007-11-21 02:19
Merkilegt hvað er mikil skriffinska í að koma einu 3 ára barni á leikskóla í þessu landi. Þarf sennilega að eyða heilum degi hangandi á locutoríu með faxmaskínu að tala við íslenskar stofnanir og fá þær til að senda pappíra. Bara til að þurfa svo að taka annan dag af því þetta voru ekki frumritin, eða ekki réttu pappírarnir, eða ekki undirritað af nógu mörgum eða eitthvað. Þoli ekki svona skriffinsku þótt ég geti alveg skilið nauðsynina upp að vissu marki. En af litla gutta er fínt að frétta. Hann er orðinn ofsalega duglegur að tala, en það sem er virkilega hans sterka hlið er hvað hann er klókur og duglegur. Grípur bolta eins og hann hafi verið að spila í NBA í mörg ár, heldur lagi eins og ekkert sé (og kann mörg lög), dansar, syndir mjög vel bara með armkúta og gengur frá dótinu sínu. Það hefur ekki enn tekist að þjálfa móður hans til þess að ganga frá dótinu sínu....
[ varanleg slóð ]
[ ]
|
Við skulum alveg....
2007-11-19 02:44
...sleppa öllum "hei vá ég er ekki búin að blogga í 3 ár *hósthóst"-færslum. Það þarf ákveðið ástand til að vera blogghæfur og ég hef ekki verið það. Nautsj! Er ég þá byrjuð að vandræðast. Allavegana þá er lífið ágætt hér í útlandinu. Ýmislegt mætti betur fara, annað er fínt og aldrei betra. Sakna sumra, annarra alls ekki - hugsa um flesta þó. Nýjir vinir, með og án hlunninda, nýtt umhverfi, uppgötvanir og naflaskoðanir. Bara sama sama, bara með pálmatrjám í stað grýlukerta og alvöru sólbrúnku, ræt??
:) Það er að minnsta kosti ferli í gangi og þá þarf maður stundum að tjá sig. Margt búið að gerast en endanum síst af öllu náð. Örugglega margar hæðir og lægðir og krufningar, dánartilkynningar, upprisur og kraftaverk áður en yfir lýkur. :) Kryptískt? Já ég veit.
[ varanleg slóð ]
[ ]
|
Nýjasta reynslusagan
2006-11-02 13:50
"Fyrirtíðaspennan eyðilagði hjónaband mitt..." Tjékk it í næstu bókabúð nálægt þér.
[ varanleg slóð ]
[ ]
|
Rapport
2006-11-01 23:30
Mér líður vel. Ástæðurnar eru A-B-C og D end ðenn fökk jú lott - ég blogga aftur eftir 3 ár.
[ varanleg slóð ]
[ ]
|
Vandræðalegt prófkjörsslagorð
2006-10-25 18:44
Var að flækjast á mbl.is og þar var auglýsing frá Sigríði Andersen sem stakk mig í málvitundina. "Nýtum og njótum náttúrunnar!" Er ég orðin eitthvað ryðguð eða er þetta ekki alveg hrópandi kolvitlaust?? Við nýtum ekki náttúrunnar (ef.) við nýtum náttúruna (þf.). Aftur á móti njótum við náttúrunnar. Má þetta nokkuð - þyrfti þetta ekki að vera nýtum náttúruna og njótum hennar (eða njótum og nýtum). Hmmm...well ekki er ég hrifin af Sjálfstæðisflokknum svo mér er svo sem sama.
[ varanleg slóð ]
[ ]
|
Blablabla
2006-05-19 02:08
Líkið af bloggaranum í mér rumskar alltaf öðru hvoru...ég er ekki alveg viss um hvort það er að rísa upp frá dauðum eða bara koma sér betur fyrir ;D Ástæða færslunnar er sú að ég dáist að henni Ágústu Evu/Sylvíu Nótt fyrir að standa af sér púið í salnum í Júró í kvöld. Það er ekki fyrir hvern sem er að performera eins og hetja undir þessum kringumstæðum. Jú gó görrrrl! Evrópubúar eru bara húmorslausir harðfiskar með hangandi hor og taka sjálfa sig allt of hátíðlega. Ótrúlegur dónaskapur að púa á fólk undir svona kringumstæðum - dónalegt á subbulegum bar og alveg eyrað hakkað af skömminni að púa í salnum á Júróvisjon. *dæs* Annars er fullt af mér að frétta en líkið er að lognast út af aftur, svo það fylgir ekki rantinum. Já og áfram Finnland!! Þvílík snilld! Meira hryllingsrokk! Yeah!
[ varanleg slóð ]
[ ]
|
Klipp klipp
2006-03-03 21:59
Lét klippa hippalubbann á augasteininum mínum um daginn. Ótrúlega skrýtið móment að sitja þarna rosalega sentímental yfir því að í fyrsta sinn væri hár skert á höfði sonar míns. Og á meðan hljómaði "Every breath you take" í útvarpinu... Hafði verið að pæla í að klippa hann bara sjálf en ... úff ég þorði því ekki :P Svo það var rosalega góð kona á Laugarveginum sem klippti hann bara á staðnum þegar ég í skyndiákvörðunarkasti tók U-beygju inn á klippistofu og spurði hvort það væri laust. Hann er alger pottormur núna með þetta nýja hár. Fór bara úr ungabarni í hálfstálpað smábarn einn-tveir-þrír :S
[ varanleg slóð ]
[ ]
|
Lög á heilanum
2005-11-25 10:53
Nú er ég búin að vera að mæta galvösk daglega á hlöðu þá kennda við bókaþjóð og taka til í glósum og undirbúa próflestur. Niðri við kaffistofu hangir spjald með umfjöllun um Ragnheiði biskupsdóttur. Og nú þriðja daginn í röð losna ég ekki við úr hausnum á mér lagið hans Megasar...("Ragnheiður biskupsdóttir brókar var með sótt...lalalallaallaa...") Líður eins og pútu í guðshúsi hérna... Hahahahahaha Annars er prófkvíðinn alveg að gera útaf við mig. Ég er með brækurnar á hælunum verr en nokkru sinni fyrr vegna veikinda erfingjans, minna, dagmömmunnar að ónefndum flutningum og apaskítsdreifurum sem geta ekki séð fjölskylduna mína í friði. Langar bara að stræka á þetta allt og taka aðventuna út í jólaföndur, bakstur, bæjarferðir og dúllerí með uppáhalds manneskjunni minni :) Þarf að streitast við að einbeita mér að praktískum hlutum eins og málsforræði, frávísun frá dómi ex officio og svoleiðis og hætta að hanna hið fullkomna, barnvæna jólatré í huganum. Hætta líka að hugsa um hvernig ég ætla að elda hinn fullkomna kanilkjúkling og setja upp óáfengt jólaglöggboð fyrir 5-10 mömmur með börn kringum 1 árs aldurinn. Já og svo er maður með hugann við fyrsta afmæli augasteinsins líka.... Hjálp!
[ varanleg slóð ]
[ ]
|
Móðurhjartað verður meyrt
2005-10-24 11:25
Af þessarri yfirlýsingu hérna. Við stúlkurnar stöndum í sömu þakkarskuld og synirnir. Minnir mig á það að ég er að ala upp son núna og ég vona að mér takist eins vel upp og téðum mæðrum. Ég þekki nokkra þessarra sona og þeir eru framúrskarandi einstaklingar.
[ varanleg slóð ]
[ ]
|
|
|