Heiða fúskistelpa :)
2002-10-22 14:23
Já! Ég er bara klók :) Eftir að Siggi Palli og Halldóra heimsóttu mig í gærkvöldi fékk ég alveg yfir mig nóg af ónýtu útihurðinni minni. Hún var byrjuð að opnast af sjálfu sér, ég kom t.d. að henni opinni á Sunnudagsmorgun - eeek! Þ.a. Heiða handlagna (= Heiða þreytulegi fúskari) tók sig til að setti slatta af skrúfum og dóti hér og þar í karminn og viti menn - dyrnar haldast lokaðar og það nokkurn vegin steinþegjandi og hljóðalaust. Haha! Annars var alveg últra-gaman að fá Zato og Kisu í heimsókn, ég fæ voða sjaldan heimsóknir. Aðallega má skrifa heimsóknarsneyð mína á það að ég er með þá flugu í hausnum að heimiliskrílið mitt sé svo illa til haft og óklárað að innan að það sé ekki gestum bjóðandi. Ég held ég geti nokkurn vegin leyst þetta með því að eignast fleiri stóla! Datt það í hug í gær. Svo var ég að hugsa um að losa mig við sófann og fá mér bara stóra mottu og fullt af púðum og láta fólk bara dúsa á gólfinu Persíu/Japan-stæl. Það væri örugglega áhugavert partílega séð...
[ varanleg slóð
]
|