[ heim | dagbók | eldra efni ]

Dagbók Heiðu - 2002-10-25 17:25



Góður fimmtudagur :)
2002-10-25 17:25

Þegar ég var búin að borða mitt ofurfrábæra spaghetti Bolognese og drekka tvo bolla af latte kl. 20.00 í gær fékk ég kláða í lappirnar. Ég hafði verið að hugsa um að skreppa eitthvað út, en vissi ekki til þess að neinn sem ég þekkti væri að fara að gera neitt og því síður gera það sem ég vildi gera... A bit complicated but...
En svo mundi ég nú eftir því sem flest einhleypt fólk ætti að muna: þú þarft ekkert að hafa einhvern til að halda í hendina á þér í hvert skipti sem þú ferð út úr húsi! Þú hefur ekki þurft þess síðan þú varst 7 ára. Að félagsskap (og foreldrum mínum) ólöstuðum, þá auðvitað hefur það aldrei verið bannað að fara einn síns liðs í göngutúr, á tónleika, upplestra, fundi, kaffihús...o.s.frv.
Þar með er ekki sagt að þetta sé ný uppgötvun hjá mér. Ég gleymi þessu bara með reglulegu millibili. Það er skrýtið hvernig maður á ekki í neinum vandræðum með að sitja einn heima og njóta eigin félagsskapar. En ef maður fer t.d. einn á kaffihús/tónleika/*votteeever* þá finnst manni það eitthvað erfitt. Manni finnst eins og allir hljóti að horfa á mann og hugsa um hvað maður hljóti að vera leiðinleg þar sem maður neyðist til að vera ein á ferð. Sem er stórskrýtið þar sem að stærsti kosturinn við að vera einhleypur er einmitt að geta gert það sem maður vill sjálfur og þurfa ekki að stunda eilífar málamiðlanir. Og að ætla svo að hugsa: "ég get ekki farið á bókmenntaupplestur af því að enginn vill fara með mér...", er eiginlega hin fullkomna birting á því að kunna ekki að njóta þess að vera einhleypur. Fyrir utan að fólk er almennt ekkert að glápa og spekúlera í hvort fólk er eitt, eða í hóp. Í versta falli gæti einhver leiðindaskjóðan ákveðið að ég þyrfti félagsskap. Í besta falli gæti fólki (lesist: girnilegir karlmenn) fundist ég vera dularfull og áhugaverð svona ein á ferð...(svo ekki sé minnst á aðgengileg)
Það hefur sína kosti að vera óbundin og búa ein. En það hefur auðvitað líka galla, eins og allt annað. Og maður á auðvitað að nota tímann og njóta kostanna á meðan maður getur. Ég hef nógan tíma til að geta ekki farið neitt ein og þurfa að gera málamiðlanir, síðar. Miklu síðar.
Þetta er einusinni enn, þegar á botninn er hvolft, spurning um að gera það besta úr því sem maður hefur. Enda væri annað bara hreinræktuð flónska. Ég nenni ekki að sitja og kvarta yfir aðstæðum mínum þegar ég get annaðhvort drifið í að bæta úr þeim eða, ef ég get ekki breytt þeim, notið þeirra kosta sem þær hafa uppá að bjóða.
Og sannleikurinn er að 90% af tímanum er ég harðánægð með mínar aðstæður og það er hreinasta synd að nýta sér þær ekki alveg í botn :)
En allvegana þá ákvað ég að lífið hefði uppá allt of margt að bjóða til að sitja heima og bora í nefið, svo ég ákvað að fara í göngutúr og kíkja á nokkra af þeim viðburðum sem borgin bauð mér uppá það kvöldið...
Fyrst fór ég á bókmenntaupplestur á Súfistanum, þar sem ég hitti Guðmann, þar sem lesið var upp úr eigin þýðingum. Ég ætla að gera þetta oftar. Gaman, ókeypis og skilur töluvert eftir ef vel til tekst :)
Svo fékk ég sms frá Siggu sætu sem var að leita að föruneyti á tónleika á 22 með Stjörnukisa og færeysku bandi sem heitir Krít. Þannig að ég skellti mér :) Og strákarnir í Krít komu mér mikið á óvart! Alltaf gaman þegar það gerist :)
Eiginlega myndi ég vilja hafa þetta miklu lengra, en ég nenni því ekki þegar lífið og föstudagurinn vilja að ég fari út að leika. En niðurstaða mín er sú að þótt ég hafi haft í hyggju að fara ein út, þá kom félagsskapurinn bara samt. Þá get ég hlakkað til næst þegar ég "á enga vini", því þá verð ég ekki feimin við að fara ein út. Vá, ég hlakka eiginlega í alvöru til :)

[ varanleg slóð ]

<< aftur   |   áfram >>


User:
Pass:

Stofnfrumur í brjóstamjólk
Hathor the cow goddess
Ein í úttlandinu
Meiri Tristan...
Tristan á youtube
Hver er ber að baki nema barn eigi...
Pappírsflóð
Við skulum alveg....
Nýjasta reynslusagan
Rapport
Vandræðalegt prófkjörsslagorð
Blablabla
Klipp klipp
Lög á heilanum
Móðurhjartað verður meyrt
Lítil setning
Heiða fasjónviktim
Eyrnabólguálfurinn
Skóli á morgun
Hamfaraleiðbeiningar fyrir foreldra
Ferðalag!
Ýmiskt á seyði
Minni Tröllastelpunnar (Til Afa)
Ég er allavegana góð í 80' textum...
Verið að verðlauna sig
Ein ekki með á nótunum...
Og þá er það enn eitt quizzið
Munaður


Heiða Dögg Liljudóttir - heida@klaki.net