Stereolab og subbuskapur
2002-10-28 14:52
Ég fór á tónleika með Stereolab á Grandrokk á föstudagskvöld. Mér fannst þetta alveg skelfilega yndisleg reynsla, þótt ekki séu allir á sama máli :D En ég verð að segja eins og er að þótt smæð efri hæðar Grandrokks í hlutfalli við fjölda gesta hafi kannski mátt líta á sem bara náið og kósí fyrirbæri þá fannst mér helst til þröngt á þingi. En eins undarlega og það má virðast var eins og það væri töluvert þrengra meðan Apparat Organ Quartet var að spila. Sem kannski er engin furða, því AOQ eru bara drullugóðir :) Síðan var farið á Sirkus sem var ágætt, þartil ég hljóp yfir götuna á 22 að hitta hann Hákon Víði í djammtilgangi. Það vildi nú ekki betur til en svo að áfengisbarómeterinn hjá henni Heiðu litlu bilaði og eftir einhverjar skotasteypingar varð bara allt svart. Úff! Þetta hefur aldrei komið fyrir áður :P Hjálp! En ég komst allavegana heim að lokum, en hélt ekki bita niðri fyrr en seint á laugardagskvöld. Ég er bara þakklát að líf mitt og limir virðast óskaddaðir. Eins og augljóst má virðast var því sem eftir var af helginni eytt með nefið á kafi ofan í Sögu Rómarveldis I, undir sæng, í ullarsokkum, með nammi og heitt te. Litla mín er farin í djammfrí :P
[ varanleg slóð
]
|