Ein ekki með á nótunum...
2005-04-02 12:01
Það fór alveg gjörsamlega framhjá mér að það væri 1. apríl í gær! Mikið óskaplega hefði verið auðvelt að láta mig hlaupa, en blessunarlega lét enginn sér detta í hug að plata reytta og tætta ungamömmu :D Dreymdi í nótt að ég væri að kyrkja fólk sem var að gagnrýna móðurhæfileika mína. Sennilega er ekki góð hugmynd að pirra mig þessa dagana ;) Annars fór unginn í fyrstu sprautuna sína á fimmtudaginn. Tók ekki eftir þessu og varð ekkert lasinn á eftir. Þetta blessaða barn er svo hraust, að því er virðist, að mér líður eins og móðursjúkri yfirfærslu-ímyndunarveikis kellingu í hvert skipti sem ég fer með hann í læknisskoðun. Ég er viss um að læknirinn hlær að mér í hvert skipti sem ég fer....
[ varanleg slóð ]
[ ]
|