[ heim | dagbók | eldra efni ]

Dagbók Heiðu - 2005-06-24 12:45



Ýmiskt á seyði
2005-06-24 12:45

Það er ýmislegt að frétta héðan út bloggletinni.

Ég er byrjuð að lesa fyrir sumarpróf...eða *hóst* .... búin að taka bækurnar niður úr hillu og horfi á þær þegar stubbalingurinn sefur. En á dagskránni er að taka þetta bara með trukki meðan tími gefst í sumar... Sjáum hvernig það gengur.

Tristan er bara næstum orðinn fermingarstrákur...var tæp 10 kg. og 70 cm. í 5 mánaða skoðun. Hann er kominn með 2 tennur, situr næstum sjálfur, horfir eftir hlutum sem hann missir og nagar allt sem hann nær í. Ég þarf að plata einhvern til að hjálpa mér að veggfesta húsgögnin og setja lása á skúffur og skápa. Ekki langt í að hann fari bara af stað og ég skal lofa ykkur því að handóðara barn er vandfundið ;) Ótrúlega stutt síðan hann vara bara pínulítið kríli sem lá bara á bakinu og horfði stórum augum á heiminn. Núna kjaftar á honum hver tuska á hans eigin tungumáli sem enginn skilur nema hann, hann rúllar sér út um allt (ekkert að láta það stoppa sig að hann geti ekki skriðið), tekur graut úr skeið með fingrunum og treður í augað á sér og brosir, hlær og skríkir. Barnið er með rokna húmor.

Nóg af barnagrobbi ;)

Djössss...mér dettur ekkert annað í hug en barnagrobb! Þetta er ástæðan fyrir því að ég hef verið löt að blogga :P

Jæja....ok pabbi minn kom í heimsókn í 3 vikur frá Danmörku. Það var voða gott að sjá hann.

jáhmmm...

[ varanleg slóð ] [ ]

<< aftur   |   áfram >>


User:
Pass:

Stofnfrumur í brjóstamjólk
Hathor the cow goddess
Ein í úttlandinu
Meiri Tristan...
Tristan á youtube
Hver er ber að baki nema barn eigi...
Pappírsflóð
Við skulum alveg....
Nýjasta reynslusagan
Rapport
Vandræðalegt prófkjörsslagorð
Blablabla
Klipp klipp
Lög á heilanum
Móðurhjartað verður meyrt
Lítil setning
Heiða fasjónviktim
Eyrnabólguálfurinn
Skóli á morgun
Hamfaraleiðbeiningar fyrir foreldra
Ferðalag!
Ýmiskt á seyði
Minni Tröllastelpunnar (Til Afa)
Ég er allavegana góð í 80' textum...
Verið að verðlauna sig
Ein ekki með á nótunum...
Og þá er það enn eitt quizzið
Munaður


Heiða Dögg Liljudóttir - heida@klaki.net