Skóli á morgun
2005-08-31 16:22
Jæja þá byrjar blessaður skólinn á morgun og hveitibrauðsdagarnir með kútnum búnir.
Alltaf jafn skemmtilegt hvað kennararnir eru hugulsamir í hinni elskulegu lagadeild HÍ. Leiðbeiningar um alveg ein heil bókakaup komin í tölvupósti og svona lekkert. Annars hefur ekki heyrst múkk í þeim kennurum sem lesa eiga yfir hausamótum 3ja árs nema í vetur. Svo þarf alltaf að kaupa bækurnar í hinni einstaklega þjónustulipru bóksölu Úlfljóts sem er opin að meðaltali frá 15.11 til 15.18 þriðja fimmtudag hvers mánaðar sex mánuði á ári. Yndislegt fyrir fólk með yfirhlaðna dagsskipan að öllu jöfnu. Einstæðar mæður og svona (eða mæður bara yfirleitt). Við náttúrulega elskum að eyða þeim litla og dýrkeypta tíma sem við höfum á daginn í að standa í biðröð. Kærum okkur auðvitað ekkert um að versla í bóksölu stúdenta sem er opin á almennum skrifstofutíma þannig að biðraðirnar eru örlítið styttri. Ekkert spennandi við það, ó seisei nei... Ekki það að ég hafi neitt út á bóksölu Úlfljóts að setja per se...en mér þætti ágætt að hafa val um það hvar og hvenær ég kaupi mínar námsbækur. Tristan er byrjaður í aðlögun hjá dagmömmu. Hann er nú svoldill mömmulingur í sér til að byrja með. En honum líkar greinilega vel við dagmömmuna og ég sé ekki betur en að honum finnist hinir krakkarnir spennandi, svo ég vona að þetta venjist hjá honum. Svo er hann fullur af kvefi og að fá 3 nýjar tennur. Mikið að gerast hjá litlum stubb.
[ varanleg slóð ]
[ ]
|