[ heim | dagbók | eldra efni ]

Dagbók Heiðu - 2005-09-14 23:40



Eyrnabólguálfurinn
2005-09-14 23:40

Eyrnabólguálfurinn stoppaði við á þessu heimili og útdeildi af örlæti sínu svæsinni og sársaukafullri eyrnabólgu handa krónprinsinum.

Litla greyið er búið að vera óvær á nóttunni, tosandi í eyrun af og til og ekki viljað liggja á bakinu, frekar lengi. Og mamma hans var ekkert að tengja! Hélt að hann væri bara órólegur út af daglegu róti (nýbyrjaður hjá dagmömmu) :S Svo kom að því að það komu 2 andvökunætur í röð og svo hár hiti sem stílar virkuðu ekkert á.

Hann er reyndar búinn að vera með endalaust stíflað nef í marga mánuði, svo ég hef haft áhyggjur af eyrnabólgu og heimtað í hverri ungbarnaskoðun að það væri kíkt í eyrun - en var samt ekkert að fatta núna fyrr en læknirinn skoðaði í eyrun og sagði að það væri alveg bullandi sýking í gangi. Ein sofnuð á verðinum :(

En allavegana þá er Eyrnaslappi litli búinn að fá mixtúru, ýtarlega nefhreinsun (sem gerði hann alveg oooofboðslega reiðan), nezeril, rótsterkan stíl og góðan skammt af lö mammaz brjúllz og steinsefur loksins eins og lítill steinn.

Litla greyið er búinn að standa sig ofsalega vel og hefur verið alveg furðulega brattur þrátt fyrir að hafa augljóslega verið mjög kvalinn. Litli naglinn hennar mömmu sinnar. Já maður má alveg vera væminn á svona stundum... *sniff*

[ varanleg slóð ] [ ]

<< aftur   |   áfram >>


User:
Pass:

Stofnfrumur í brjóstamjólk
Hathor the cow goddess
Ein í úttlandinu
Meiri Tristan...
Tristan á youtube
Hver er ber að baki nema barn eigi...
Pappírsflóð
Við skulum alveg....
Nýjasta reynslusagan
Rapport
Vandræðalegt prófkjörsslagorð
Blablabla
Klipp klipp
Lög á heilanum
Móðurhjartað verður meyrt
Lítil setning
Heiða fasjónviktim
Eyrnabólguálfurinn
Skóli á morgun
Hamfaraleiðbeiningar fyrir foreldra
Ferðalag!
Ýmiskt á seyði
Minni Tröllastelpunnar (Til Afa)
Ég er allavegana góð í 80' textum...
Verið að verðlauna sig
Ein ekki með á nótunum...
Og þá er það enn eitt quizzið
Munaður


Heiða Dögg Liljudóttir - heida@klaki.net