[ heim | dagbók | eldra efni ]

Dagbók Heiðu - 2005-11-25 10:53



Lög á heilanum
2005-11-25 10:53

Nú er ég búin að vera að mæta galvösk daglega á hlöðu þá kennda við bókaþjóð og taka til í glósum og undirbúa próflestur. Niðri við kaffistofu hangir spjald með umfjöllun um Ragnheiði biskupsdóttur. Og nú þriðja daginn í röð losna ég ekki við úr hausnum á mér lagið hans Megasar...("Ragnheiður biskupsdóttir brókar var með sótt...lalalallaallaa...") Líður eins og pútu í guðshúsi hérna... Hahahahahaha

Annars er prófkvíðinn alveg að gera útaf við mig. Ég er með brækurnar á hælunum verr en nokkru sinni fyrr vegna veikinda erfingjans, minna, dagmömmunnar að ónefndum flutningum og apaskítsdreifurum sem geta ekki séð fjölskylduna mína í friði.

Langar bara að stræka á þetta allt og taka aðventuna út í jólaföndur, bakstur, bæjarferðir og dúllerí með uppáhalds manneskjunni minni :) Þarf að streitast við að einbeita mér að praktískum hlutum eins og málsforræði, frávísun frá dómi ex officio og svoleiðis og hætta að hanna hið fullkomna, barnvæna jólatré í huganum. Hætta líka að hugsa um hvernig ég ætla að elda hinn fullkomna kanilkjúkling og setja upp óáfengt jólaglöggboð fyrir 5-10 mömmur með börn kringum 1 árs aldurinn. Já og svo er maður með hugann við fyrsta afmæli augasteinsins líka.... Hjálp!

[ varanleg slóð ] [ ]

<< aftur   |   áfram >>


User:
Pass:

Stofnfrumur í brjóstamjólk
Hathor the cow goddess
Ein í úttlandinu
Meiri Tristan...
Tristan á youtube
Hver er ber að baki nema barn eigi...
Pappírsflóð
Við skulum alveg....
Nýjasta reynslusagan
Rapport
Vandræðalegt prófkjörsslagorð
Blablabla
Klipp klipp
Lög á heilanum
Móðurhjartað verður meyrt
Lítil setning
Heiða fasjónviktim
Eyrnabólguálfurinn
Skóli á morgun
Hamfaraleiðbeiningar fyrir foreldra
Ferðalag!
Ýmiskt á seyði
Minni Tröllastelpunnar (Til Afa)
Ég er allavegana góð í 80' textum...
Verið að verðlauna sig
Ein ekki með á nótunum...
Og þá er það enn eitt quizzið
Munaður


Heiða Dögg Liljudóttir - heida@klaki.net