Pappírsflóð
2007-11-21 02:19
Merkilegt hvað er mikil skriffinska í að koma einu 3 ára barni á leikskóla í þessu landi. Þarf sennilega að eyða heilum degi hangandi á locutoríu með faxmaskínu að tala við íslenskar stofnanir og fá þær til að senda pappíra. Bara til að þurfa svo að taka annan dag af því þetta voru ekki frumritin, eða ekki réttu pappírarnir, eða ekki undirritað af nógu mörgum eða eitthvað. Þoli ekki svona skriffinsku þótt ég geti alveg skilið nauðsynina upp að vissu marki. En af litla gutta er fínt að frétta. Hann er orðinn ofsalega duglegur að tala, en það sem er virkilega hans sterka hlið er hvað hann er klókur og duglegur. Grípur bolta eins og hann hafi verið að spila í NBA í mörg ár, heldur lagi eins og ekkert sé (og kann mörg lög), dansar, syndir mjög vel bara með armkúta og gengur frá dótinu sínu. Það hefur ekki enn tekist að þjálfa móður hans til þess að ganga frá dótinu sínu....
[ varanleg slóð ]
[ ]
|